Í frelsarans nafni

Í frelsarans nafni
(Lag / texti: Sigurður Laufdal)

Þú veist það vel að Jesús var bara hippi
á geðtrufluðu kókaíntrippi
en fólkið taldi sig heyra þann fróða
og sá því í fari hans – aðeins það góða.

Í eyðimörkinni var soldið súr
enda fjörutíu daga kókaín kúr,
þar saug hann og saug án drykkjar og matar
þar til honum birtist sá er hann hatar.

Sú dæmisaga sem oft er sögð
og þvertekið fyrir öll bellibrögð,
þeir sögðu að hann gengi á vatni en vissu það ekki
að fyrr þann sama dag – gaf Jesús þeim sveppi.

Jú ég hef svosem tekið sveiflurnar nokkrar,
þrýstnir barmar, ljósir lokkar.
Sogið og sogið eins og frelsarinn sjálfur
í kókaín móki orðinn einn og hálfur.
Með allt á hreinu og aðeins eitt að stafni.

Rokk og ról í frelsarans nafni,
rokk og ról í frelsarans nafni,
rokk og ról í frelsarans nafni,
rokk og ról í frelsarans nafni.

[óútgefið]