Ljúfa líf

Ljúfa líf
(Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson)

Ó, ljúfa líf,
við lofgjörð syngjum þér,
þú fagra ljúfa líf
sem gefur gleðistundir,
dýran unað og ást
sem aldrei mun mást.

Þú gjöf átt, þótt gengið sé lágt,
ó fagra ljúfa líf
sem gefur gleðistundir.
dýran unað og ást
sem aldrei mun mást.

Þú gjöf átt, þótt gengið sé lágt,
ó fagra ljúfa líf
sem öll við leitum
hvert á sinn hátt.

Ó ljúfa líf
með söngva, ærsl og mannamót,
þú ljúfa líf
með vinnu, gleði og vinahót
sem veita okkur styrk
ef vandamál myrk leika oss grátt,
þegar gleður oss fátt
þú fagra ljúfa líf
sem öll við leitum hvert á sinn hátt.

Þitt dýrðlega algleymi og unaðarbál
mig altaka skal í kvöld svo hrífist mín sál.
Á flugvængjum ástarinnar í paradís,
hið æðsta og besta sem að nokkur maður sér kýs.

Ó ljúfa líf,
sem löngum okkar kveikir
villta ljúfa líf
sem viðnám okkar veikir
fyrir sóun og synd,
svalli og girnd sem er tryllt
en svo töfrandi gyllt,
þú fagra ljúfa líf
sem bæði getur göfgað og spillt
(og hvað sem þú vilt).

[m.a. á plötunni Vilhjálmur og Elly Vilhjálms – Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman]