Þú ert sjálfur Guðjón

Þú ert sjálfur Guðjón
(Lag / texti: Hörður Torfason / Þórarinn Eldjárn)
 
Guðjón lifir enn í okkar vonum,
enginn getur flúið skugga hans,
þér er sæmst að halla þér að honum,
hann er gróinn sál þíns föðurlands,
þig stoðar lítt með gulli og glysi að skarta,
þú ert Guðjón sjálfur innst í hjarta.

Ungan léstu sverta þig og svíkja,
þú sást ei þá hve margt er blekking – tál,
á fúnu hripi rak þig milli ríkja,
hver rakki fékk að snuðra í þinni sál,
drjúptu höfði því að það er meinið,
þú ert sjálfur Guðjón inn við beinið.

Þannig varstu hrakinn land úr landi,
lítilsigldur fóli – aumur – smár,
en nú er burtu villa þín og vandi,
þú viknar – hrærður fellir gleðitár,
þótt illur sért er síst of seint þig iðri,
þú ert sjálfur Guðjón undir niðri.

Brátt mun skína í Guðjón gegnum tárin,
gróður lífsins vex úr þeirri mold,
einhvern tíma seinna gróa sárin
er svik við Guðjón brenndu íslenskt hold,
senn mun koma sá er hlýtur völdin,
þú ert sjálfur Guðjón bakvið tjöldin.
 
[einnig er til lag eftir Atla Heimi Sveinsson við þennan texta]
[m.a. á plötunni Hörður Torfa – Hörður Torfa syngur eigin lög]