Troubles (1969-73)

Hljómsveit sem bar nafnið Troubles var starfrækt á Raufarhöfn á árunum 1967 til 1972.

Troubles gerði aðallega út á ballspilamennsku og coverlög þótt sveitin hefði eitthvað frumsamið á prógrammi sínu, þeir félagar spiluðu mestmegnis á heimaslóðum og nærsveitum en fóru líklega víðar yfir sumartímann.

Meðlimir sveitarinnar lengst af voru Jóhannes Guðmundsson [?], Stefán Friðgeirsson [?] og Ingi Örn Geirsson [?] en á einhverjum tímapunkti voru þeir Jón Magg [?], Sævar Guðmundsson og Víðir Óskarsson í henni, ekki þó samtímis. Frekari upplýsingar um nöfn hljómsveitarmeðlima, og hljóðfæraskipan, væru vel þegnar.

Troubles kom saman aftur árið 1987 en ekki liggur fyrir hverjir skipuðu sveitina þá.