Vinir vors og blóma [1] (1991-92)

Hljómsveitin Vinir vors og blóma starfaði innan Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki árin 1991 og 92 að minnsta kosti.

Vinir vors og blóma léku nokkuð á almennum dansleikjum norðan heiða og mun einnig hafa annast undirspil í söngvakeppnum nyrðra. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Arnbjörn Ólafsson hljómborðsleikari, Fjölnir Ásbjörnsson söngvari, Ólafur Þór Jósefsson bassaleikari, Haukur Reynisson hljómborðsleikari, Guðmundur Engilbertsson gítarleikari og Kristján Kristjánsson trommuleikari. Þess má geta að tveir þeir síðast töldu áttu síðar eftir að leika með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.

Þegar hljómsveitin hafði hætt störfum falaðist ný hljómsveit eftir nafninu Vinir vors og blóma, sem var góðfúslega leyft og var það að sjálfsögðu hljómsveitin sem naut töluverðra fáeinum árum síðar undir þessu sama nafni.