Afmælisbörn 25. ágúst 2015

Magnús Eiríksson

Magnús Eiríksson

Í dag er eitt afmælisbarn á skrá hjá Glatkistunni en þar er reyndar á ferðinni stórt nafn með stórafmæli:

Magnús Eiríksson laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngvari er sjötugur á þessum annars ágæta degi. Magnús er einn allra helsti lagahöfundur íslenskrar tónlistarsögu, á að baki sólóferil sem og feril með hljómsveitum á borð við Mannakorn, Brunaliðið, Pónik og Blúskompaníið auk samstarfs við Kristján Kristjánsson (KK) og fleiri. Magnús hefur einnig í gegnum tíðina starfað með ótal óþekktum sveitum. Meðal laga sem Magnús hefur samið má nefna Ég er á leiðinni, Garún, Línudans, Komdu í partí, Þjóðvegurinn, Reyndu aftur, Óbyggðirnar kalla, Braggablús og Gleðibankinn en síðast talda lagið var árið 1986 fyrsta framlag Íslands til Eurovision keppninnar. Magnús rak um árabil hljóðfæraverslunina Rín, hann hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 1999.