
Ómar Ragnarsson
Tvö afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni:
Sjálfur orkuboltinn Ómar (Þorfinnur) Ragnarsson er sjötíu og fimm ára í dag. Fáir hafa komið jafn víða við í lífinu og Ómar en hann hefur fengist við fréttamennsku, þáttagerð, flugmennsku, rallakstur, skemmtanahald og tónlist auk þess að vera einn þekktasti náttúruverndarsinni okkar Íslendinga. Ómar hefur sungið á tugum hljómplatna, samið texta og tónlist, auk söngskemmtana í gegnum tíðina.
Jón Ólafsson frá Kirkjulæk í Fljótshlíð hefði einnig átt afmæli í dag en hann lést 2008, aðeins fimmtíu og þriggja ára. Jón (fæddur 1955) var í hljómsveitinni Hjónabandinu ásamt eiginkonu sinni og fleirum en tvær plötur komu út með sveitinni, þar af önnur sem gefin var út í minningu Jóns. Hann var einnig einn af Öðlingunum, litlum sönghópi sem starfar innan Karlakórs Rangæinga.