
Svanhildur Jakobsdóttir
Afmælisbörnin í dag eru fjögur talsins á skrá Glatkistunnar:
Svanhildur Jakobsdóttir söng- og dagskrárgerðarkona er sjötíu og fimm ára, hún söng lengst af með hljómsveit eiginmanns síns, Sextett Ólafs Gauks, en einnig áður með öðrum sveitum. Svanhildur söng inn á fjölmargar plötur sextettsins á sínum tíma og gaf einnig út nokkrar sólóplötur sjálf.
Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er sjötíu og eins árs gamall á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar í Keflavík. Erlingur gerðist síðar umboðsmaður Trúbrota.
Kjartan Hákonarson trompetleikari er þrjátíu og þriggja ára, hann hefur leikið í fjölmörgum hljómsveitum eins og Jagúar og Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar en líklega eru fáar plötur í seinni tíð sem innihalda trompetleik, sem hann hefur ekki leikið inn á.
Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari (1930) frá Akureyri hefði einnig átt afmæli þennan dag en hún lést 2012. Hún nam bæði hér heima og erlendis, var undirleikari fjölmargra kóra og einsöngvara og lék þ.a.l. inn á margar hljómplötur.