
Örn Árnason
Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:
Örn Árnason leikari og skemmtikraftur er fimmtíu og sjö ára gamall en hann er einnig kunnur söngvari og hefur bæði sungið inn á fjölmargar plötur tengdar leiksýningum auk annars konar platna. Hann hefur til að mynda verið í hlutverki sögumanns og sungið á plötum sem Afi á Stöð 2, sem jólasveinn og einnig í eigin persónu. Örn gaf ennfremur út dúettaplötuna Yfirliðsbræður ásamt Óskari Péturssyni fyrir nokkrum árum.