Afmælisbörn 24. júní 2016

Grísalappalísa3

Gunnar Ragnarsson

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar í dag:

Gunnar (Bergmann) Ragnarsson á tuttugu og sjö ára afmæli á þessum degi. Gunnar er söngvari hljómsveitarinnar Grísalappalísu sem hefur vakið athygli undanfarið fyrir tónlist sína en margir muna einnig eftir Gunnari sem söngvara í Jakobínurínu sem sigraði Músíktilraunir 2005. Sú sveit hugði á landvinninga, fékk plötusamning erlendis en sneri heim og hætti 2009. Gunnar hefur lagt stund á nám í kvikmyndafræðum í Tékklandi og hefur Gríslalappalísa því legið í salti.