Poppblaðið var skammlíft tímarit um popptónlist og kom út í fáein skipti snemma árs 1977.
Það var Gunnar Salvarsson sem var ritstjóri, eigandi og ábyrgðarmaður Poppblaðsins sem áætlað var að kæmi út á þriggja vikna fresti í fimm þúsund eintökum, hann hafði þá ritað um popptónlist í Tímanum um tíma.
Útgáfu Poppblaðsins var hætt eftir fáein tölublöð.














































