Hljómsveitin Professor Finger starfaði í neðanjarðardeild rokksins á höfuðborgarsvæðinu 1993 og 94 og lék á nokkrum tónleikum í þeirri senu.
Meðlimir sveitarinnar voru Ingimar Bjarnason söngvari og bassaleikari, Gunnar Guðmundsson trommuleikari og Finnbogi Hafþórsson gítarleikari og söngvari.
Einhverjar mannabreytingar urðu í sveitinni þegar Ingimar hætti en ekki liggja fyrir upplýsingar um þá sem á eftir komu.














































