
Óskar Ingólfsson
Nokkur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Einar Hólm söngvari og trymbill er sjötíu og eins árs gamall á þessum degi. Einar söng inn á eina litla plötu 1973 en var trommuleikari í mörgum hljómsveitum hér áður s.s. Pónik, Stuðlatríóinu, Næturgölum og Hljómsveit Ólafs Gauks svo einhverjar sé nefndar. Einar er faðir Ólafs Hólm trommara Nýdanskrar og margir trommuleikarar eru í ætt hans.
Einnig hefði Steingrímur Johnsen söngvari og söngkennari (1846-1901) átt afmæli þennan dag en hann var einna fyrstur til að kenna söng hérlendis. Steingrímur var ennfremur stofnandi og stjórnandi fjölmargra kóra á árum áður.
Óskar Ingólfsson klarinettuleikari (1954-2009) átti einnig þennan afmælisdag. Óskar lék á klarinettu með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að starfa í stóru leikhúsunum, við óperuna og víðar. Hann starfaði um tíma sem deildarstjóri tónlistarsviðs Ríkisútvarpsins, sinnti ennfremur ýmsum félagsstörfum fyrir tónlistarhreyfinguna o.m.fl.