Ég er á leiðinni
(Lag / texti: Magnús Eiríksson)
Á morgun er kominn nýr dagur
og sporin sem ég steig í nótt
fyrnast fljótt á þessum stað,
gleymir þú mér eða hvað?
Skipið skríður frá landi,
með skellum við skundum á braut,
augun skær um höfin breið
mér fylgja alla leið.
viðlag
Ég er á leiðinni,
alltaf á leiðinni
til þess að segja þér hve heitt ég elska þig.
En orðin koma seint
og þó ég hafi reynt,
mér gengur nógu illa að skilja sjálfan mig.
Á sjónum enn ég lafi,
oft ég heilann brýt um það
hvort örlögin mér hafi
ætlað einmitt þennan stað.
Þú veist að ég vil ekki í landi
en verklaginn er ég á sjó,
svo þú sérð að ég verð
að fara þessa ferð.
Skipið skríður frá landi,
með skellum við skundum á braut,
augun skær um höfin breið
mér fylgja alla leið.
viðlag
[m.a. á plötunni Brunaliðið – Úr öskunni í eldinn]














































