Maístjarnan
Lag / texti: Jón Ásgeirsson / Halldór Laxness)
Ó hve létt er þitt skóhljóð,
ó hve lengi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín.
En ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.
Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef
nema von mín og líf mitt,
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér,
þar er allt sem ég hef.
En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans.
Það er maísólin okkar,
okkar einingarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.
[m.a. á plötunni Plútó – Ef þig langar…]