Ó Jesúbarn
(Lag / texti: höfunudur ókunnur / Jakob Jóhannesson Smári)
Ó Jesúbarn þú kemur nú í nótt,
og nálægð þína ég í hjarta finn.
Þú kemur enn, þú kemur undra hljótt
í kotin jafnt og hallir fer þú inn.
Þú kemur enn til þjáðra’ í heimi hér
með huggun kærleiks þíns og æðsta von.
Í gluggaleysið geisla inn þú ber
því guðdómsljóminn skín um mannsins son.
Sem ljós og hlýja’ í hreysi dimmt og kalt,
þitt himneskt orð burt máir skugga’ og synd.
Þín heilög návist helgar mannlegt allt,
í hverju barni sé ég þína mynd.
[m.a. á plötunni Barnakór Biskupstungna – Hátíða hljómar]














































