Afmælisbörn 7. nóvember 2017

Óðinn G. Þórarinsson

Afmælisbörn dagsins eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar:

Óttarr Ólafur Proppé alþingismaður og söngvari Ham, Funkstrasse, Rass, Dr. Spock, Drullu o.fl. er fjörutíu og níu ára í dag. Margir þekkja hann einnig sem prófessorinn á Diskóeyjunni og enn fleiri muna eftir honum í bakraddahlutverki í Eurovision keppninni með Pollapönkurunum.

Alexandra Baldursdóttir gítarleikari hljómsveitarinnar Mammút er tuttugu og átta ára gömul í dag. Mammút gaf nýlega út sína fjórðu breiðskífu en sveitin hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur fyrir plötur sínar, þess má geta að sveitin er á fjórtánda ári þannig að Alexandra hefur starfað í henni hátt í helming ævi sinnar sem þó er ekki ýkja löng.

Óðinn G. Þórarinsson lagahöfundur og harmonikkuleikari er áttatíu og fimm ára gamall í dag. Óðinn gerði garðinn frægan með hljómsveitum á Fáskrúðsfirði og á Akranesi hér áður fyrr en þekktastur er hann án nokkurs vafa fyrir að hafa samið lagið Nú liggur vel á mér. Árið 1997 sendi Hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar frá sér plötuna Við tónanna klið en hún hafði að geyma nítján lög eftir Óðin.

Þá hefði Guðlaugur (Auðunn) Falk gítarleikari orðið fimmtíu og átta ára gamall í dag en hann lést fyrr á þessu ár eftir veikindi. Guðlaugur starfaði um ævi sína með mörgum rokkhljómsveitum, sumum í þyngri kantinum, og má þar m.a. nefna Exizt, Fist, Gildruna, Dark harvest, Stálfélagið og C.o.T. Hann gaf einnig út tvær sólóplötur.

Einnig hefði Guðmundur Finnbjörnsson (f. 1923) fiðlu- og saxófónleikari frá Ísafirði átt afmæli þennan dag en hann rak hljómsveitir undir eigin nafni um árabil auk þess að leika með ýmsum danshljómsveitum hér á árum áður. Guðmundur lést 2009.