Jólanótt [2]
(Lag / texti: erlent lag / Haukur Ágústsson)
Forðum í bænum Betlehem
var borinn sá sem er,
sonur guðs sem sorg og þraut
og syndir manna ber.
viðlag
Hlustið englar himnum af
þeim herra greina frá
sem lagður var í lágan stall
en lýsir jörðu á.
Hirðum sem vöktu heiðum á
og hjarða gættu‘ um nótt –
englar fluttu gleðifregn
um frelsun allri drótt.
viðlag
Vitringum lýsti langan veg
sú leiðarstjarna hrein,
sem ljóma heimi breyskum ber
og bætir hölda mein.
viðlag
[af plötunni Pálmi Gunnarsson og Sigurður Helgi Pálmason – Friðarjól]














































