Barnakór Grindavíkur [2] (1988)

Barnakór Grindavíkur 1988

Eitthvert barnakórastarf var í Grindavík eftir nokkurt hlé veturinn 1988-89 undir stjórn Önnu Guðmundsdóttur en áður hafði verið starfræktur kór innan tónlistarskólans í bænum undir stjórn Eyjólfs Ólafssonar. Svo virðist sem Eyjólfur hafi svo tekið við kórnum af Önnu en kórinn var starfandi innan Grunnskóla Grindavíkur og virðist ekki hafa verið langlífur.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þennan kór.