
Vaka
Hljómsveitin Vaka starfaði í nokkra mánuði árið 1983 og lék mestmegnis frumsamið efni.
Sveitin, sem starfaði í Hafnarfirði var stofnuð í janúar eða febrúar 1983 og starfaði fram á sumarið. Meðlimir Vöku voru þeir Gylfi Már Hilmisson söngvari og gítarleikari, Jón Trausti Harðarson bassaleikari, Smári Eiríksson trommuleikari, Jón Þór Gíslason söngvari og hljómborðsleikari og Sigsteinn Grétarsson hljómborðsleikari. Þess má geta að hljómborðsleikarinn Hjörtur Howser lék einnig með hljómsveitinni í eitt skipti sem aukamaður.














































