
Bjarni Sigurðsson frá Geysi
Einhvers konar metdagur hlýtur að vera í dag en Glatkistan hefur upplýsingar um níu tónlistartengd afmælisbörn:
Einar Vilberg (Hjartarson) er sextíu og níu ára gamall, hann starfaði lengstum einn, gaf út tvær sólóplötur en einnig aðra plötu í samstarfi við Jónas R. Jónsson. Einar var þó eitthvað í hljómsveitum eins og Bláum englum, Eilífð, Beatniks, Rain og Brimkló sem hann staldraði reyndar stutt í.
Trausti Már Ingólfsson trommuleikari er fimmtugur ára gamall á þessum degi og á því stórafmæli. Trausti Már lék á trommur í hljómsveitinni Stuðkompaníinu frá Akureyri sem sigraði Músíktilraunir 1987 og naut feikimikilla vinsælda í kjölfarið, en hann hefur einnig lamið húðir í sveitum eins og Byltingu, Echoes, Karakter, Danshljómsveit Eyjólfs Kristjánssonar og Cuba Libre.
Þröstur Elvar Óskarsson tónlistarmaður er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Þröstur er kunnastur fyrir að hafa verið einn meðlima Súrefnis sem vakti heilmikla athygli á sínum tíma en hann var einnig í hljómsveitunum Redicent og Kindinni sem enginn vildi losa af gaddavírnum.
Daníel Þorsteinsson (Danni í Maus) trommuleikari er fjörutíu og þriggja ára gamall. Auk þess að vera trommuleikari Maus, sem sigraði Músíktilraunir 1994, hefur hann trommað og spilað með hljómsveitunum Blixbarbel hotdog band, Maunum, Sometime, Brimi, Herr Hansen, Super oldies, Big fat juicy mama, Títus og Hinum vonlausu.
Björn Roth myndlistamaður er fimmtíu og átta ára gamall í dag. Hann fékkst heilmikið við tónlist á sínum yngri árum, gaf m.a. út plötuna Autofahrt / Bílferð ásamt föður sínum, og kom einnig við sögu á plötu Bárðarbúðarböðlanna. Þekktust sveita Björns er þó án nokkurs vafa Bruni BB sem vægast sagt var umdeild hljómsveit.
Kristinn H. Árnason gítarleikari er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Hann nam gítarleik hér heima, á Spáni, Bandaríkjunum og Englandi og hefur sent frá sér nokkrar plötur með klassískum gítarleik, hann var jafnframt hér áður í hljómsveitum eins og Iss!, Júpíters, Hringjum, Reiðri konu í austurbænum . eða ? og Viðsemjendum en hefur einnig leikið inn á fjölda hljómplatna í gegnum tíðina.
Bjarni Sigurðsson frá Geysi átti afmæli á þessum degi. Bjarni, fæddur 1935, var lagahöfundur og harmonikkuleikari og lék með fjölda sveita á yngri árum sínum s.s. Tónabræðrum, Safír sextett, Caroll quintet og Tríó ´72 en hann sendi einnig frá sér þrjár plötur sem höfðu að geyma efni eftir hann sjálfan. Hann lést árið 2018.
Björgvin Guðmundsson tónskáld (f. 1891) átti einnig afmæli þennan dag en hann lést árið 1961. Björgvin fæddist í Vopnafirði, menntaðist hér heima í orgelleik en fluttist til Kanada með fjölskyldu sinni þar sem hann var öflugur í tónlistarlífi Vestur-Íslendinga. Til Íslands kom hann aftur heim um fertugt, settist að á Akureyri og starfaði þar við tónlistarkennslu og kórstjórnun auk þess að semja tónlist.
Gunnar (Eyþór) Ársælsson gítarleikari hefði ennfremur átt afmæli á þessum degi en hann lést árið 1988. Gunnar (f. 1952) lék með hljómsveitum á sínum tíma eins og Dansbandinu, Bendix og Rósinni svo fáeinar séu hér nefndar.