
Gis Johannsson
Í dag eru á skrá Glatkistunnar tvö afmælisbörn:
Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er áttatíu og þriggja gamall á þessum degi, enginn veit hversu oft hann lék undir við „síðasta lag fyrir fréttir“ en mun vera þó vera oftar en nokkur annar. Ólafur nam píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík en lauk síðan framhaldsnámi í London í kjölfarið. Hann var lengi skólastjóri Tónlistarskólans í Mosfellsbæ og hefur leikið inn á nokkra tugi hljómplatna undir söng kóra og einsöngvara.
Gísli Már Jóhannsson kántrísöngvari eða Gis Johannsson eins og hann kallar sig, er fimmtíu og tveggja ára gamall. Hann gaf út tvær sólóplötur fljótlega eftir aldamót og eina að auki með hljómsveit sinni The Big city. Hann vakti athygli fyrir enska útgáfu af laginu Traustur vinur en lítið hefur spurst til hans á kántrísviðinu síðustu árin. Hann býr í Bandaríkjunum.
Þá hefði Siguróli Geirsson kórstjóri og organisti (f. 1950) einnig átt þennan afmælisdag en hann lést árið 2001 aðeins ríflega fimmtugur. Siguróli var menntaður tónmennta- og blásarakennari og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi m.a. í orgelleik. Hann kenndi tónlist víða um ævi sína en var þekktastur fyrir störf sín sem organisti víða um Suðurnesin, auk þess sem hann stjórnaði lúðrasveitum og kórum, m.a. Æskulýðskór Keflavíkurkirkju, Karlakórnum Þröstum, Selkórnum, Karlakór Keflavíkur, Barnakór Grindavíkurkirkju o.fl.