
Sævar Sverrisson
Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Fyrst skal telja söngvarann Sævar Sverrisson en hann er sextíu og tveggja ára gamall. Sævar hefur sungið með fjöldanum öllum af misþekktum hljómsveitum og margir muna eftir honum í hljómsveitinni Spilafíflum í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík. Meðal annarra sveita sem hann hefur verið í má nefna Galíleó, Amon Ra, Cirkus, Twist og bast, Lena, Mögulegt óverdós og Rabbabandið en hann hefur einnig unnið sólóefni.
Birgir Jónsson trommuleikari er fjörutíu og sex ára gamall en hann hefur verið áberandi með hljómsveitinni Dimmu undanfarið. Birgir hefur komið víða við í hljómsveitabransanum og eru Skepna, Nykur, XIII, P.P., Lóa Fimmboga, Dægurlagakombóið, Urmull og Af lífi og sál aðeins hluti þeirra sveita sem hann hefur leikið með.