Gleðigjafar er sönghópur starfandi í Gullsmára, félagsmiðstöð eldri borgara í Kópavogi. Gleðigjafar tóku til starfa að líkindum árið 1999 en Gullsmári opnaði haustið 1997 og því gæti saga sönghópsins teygt sig örlítið í þá áttina.
Guðmundur Magnússon var lengi stjórnandi og undirleikari hópsins en líklega hefur það verið í höndum Dóru Georgsdóttur undanfarið.
Óskað er eftir frekari upplýsingum um Gullsmára-Gleðigjafana.