Brúðkaupið
(Lag / texti: erlent lag / Árelíus Níelsson)
Í fögrum draumi fyrst ég sá þig.
Í fögrum draumi mun ég þrá þig.
Brosir þú bjartara en sólin,
brúðkaupið höldum við um jólin.
Kirkjan hún ljómar þá í ljósum,
ljúft er að skreyta þig með rósum.
Ómþýðar englaraddir syngja.
Ave María.
Ó, ég elska þig,
heitt ég þrái þig,
og þú elskar mig,
oft þig dreymir mig.
Allt er hljótt,
heilög nótt sem ég helga þér,
þú ert minn, þú ert minn
um eilífð alla.
Blítt finn ég hjörtu’ og hendur mætast,
himneskir sæludraumar rætast.
Ómar frá kirkjuhvelfing hljóma,
Ave María.
[m.a. á plötunni Stelpurnar okkar – ýmsir]