
Tryggvi G. Hansen
Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi.
Tryggvi G. Hansen torfhleðslu- og fjöllistamaður er sextíu og fjögurra ára gamall í dag en hann hefur verið þekktastur síðustu árin fyrir að búa í tjaldi í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Tryggvi á þó einnig tónlistarferil að baki en þrjár plötur komu út tengdar honum á tíunda áratug 20. aldarinnar, tvær sólósnældur og ein plata með Seiðbandinu sem bar hinn frábæra titil Vúbbið era koma. Tryggvi hefur aukinheldur birst á fáeinum plötum annarra listamanna.
Einnig á Bjarni (Ragnar) Lárentsínusson söngvari og lúðrasveitamaður afmæli á þessum degi, hann er áttatíu og níu ára gamall. Bjarni söng og lék með hljómsveitum á sínum yngri árum, söng með kórum og kom stundum fram sem einsöngvari en hann sendi frá sér söngdúettaplötu ásamt Njáli Þorgeirssyni árið 1985, þá starfaði hann með Lúðrasveit í yfir sextíu ár.














































