Ræ ég við róður minn

Ræ ég við róður minn (Lag / texti: Rósa Ingólfsdóttir / þjóðvísa) Ræ ég við róður minn, réttnefur sléttnefur. Heill, sæll minn hornhnefur. Hvað segir spítnefur? Betra væri brúnnef að bera heldur járnnef, heldur en fyrir trénef að arka með eitt nef. Frostið er í fjöllunum, margrætt er á stöllunum, prúðir sitja’ á pöllunum prylla…

Ég er bundinn fastur við þig

Ég er bundinn fastur við þig (Lag / texti: Trausti Haraldsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Snertu mig hér, finndu mig brenna af heitri ást til þín. Þú hefur mig á þínu valdi, get ei neitað því að vera á valdi einhvers, er nú alveg ágætt af og til. Ég er bundinn fastur við þig með…

Partídýr

Partídýr (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson / Páll Óskar Hjálmtýsson)   Hátt í 200 manns ætla’ að brjóta allt í trylltum dans. Það er kysst og kelað hornum í. Gætt er að enginn sé þurr þótt einn gestanna sé steindauður, það er haldið áfram fyrir því. (Segðu’ okkur meir) Þetta partí…

Er þetta ást?

Er þetta ást? (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Klukkan þrjú og þú situr hér enn. Er það sat sem sagt er um þá menn sem ætlast víst til þess að hamingjan gangi að þeim, segi til nafns, bros, einn koss og svo haldið er rakleitt heim? Hvað…

Stanslaust stuð

Stanslaust stuð (Lag / Jóhann Jóhannsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjón Kjartansson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Byrjar aftur þessi ólýsanlegi kraftur sem líkt og tígrisdýr læðist að bráð, gefst ekki upp fyrr en dýrinu er náð. Verð að fá, lögin heyrast og stæltir fæturnir þurfa að hreyfast, brátt fylgja mjaðmirnar ögrandi með og blessað glingrið…

TF – Stuð

TF – Stuð (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson og Sigurjón Kjartansson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Gjörið svo vel að ganga’ um borð. Áhöfnin hér að segja nokkur orð. Þetta er vél af diskógerð. Spennið nú beltin og velkomin í furðuferð. Góða kvöldið, þetta’ er flugstjórinn. Eruð’ þið reddí að finna fiðringinn? Hér inni gengur allt…

Góða nótt [4]

Góða nótt (Lag / texti: erlent lag / Páll Óskar Hjálmtýsson) Góða nótt og sofðu ástin mín, engar geta áhyggjur náð hér til þín, í ró þér við hlið er gott svo ég bið að morguninn rísi ekki of snemma. Bráðum munt þú fara mér frá, einar eftir verða allar minningarnar sem ég á, allt…

Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt

Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt (Lag / texti: Bjarki Jónsson og Birkir Björnsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Ég berjast, ég skal líka slást til að eignast hlut í þinni ást. Vefur öllum um fingur þér, ég var fyrstur í röðinni og heimta að fá að dansa einn með þér, ekki segja nei. Kannski, kannski…

Seif

Seif (Lag / texti: Valgeir Sigurðsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Fyrsta múv, hef verið hér áður. Kannski þú. Oj, ég held ég gangi framhjá, sumir fá hér aldrei neitt, aðrir græða í rauða kross, sumir slípa sverðin beitt, leika sér með fýlusvip. Sumir hafa hálftíma, ég get verið hér allt kvöld. Nú er nóttin alltof…

Rafmagn og ljós

Rafmagn og ljós (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson og Pétur Hallgrímsson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Ég heyrði rafmagn og ljós, stjörnur og svindl, mynd sem þú mátt ekki sjá. Forsíðan mín svo hljóðlátt elskar þú mig. Umlyktu mig og kysstu mig í svefn þrem hæðum ofar en þú. Togað í mig, svífum til sjós alein…

Leyfðu mér

Leyfðu mér (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson og Gunnar Þór Eggertsson / Hreimur Örn Heimisson og Jón Guðfinnsson)   Ég ráfa um, veit aldrei hvar ég er. Mér sýnist ég þurfa að breyta mér. Um allan heiminn hringsnýst ég, reyni að finna hvar ég er. Mér sýnist ég þurfa að breyta til. Allt hefur…

Áhyggjulaus

Áhyggjulaus (Lag og texti Hreimur Örn Heimisson) Við höldum áfram eftir okkar leið á okkar vegi. Ekkert sortnar, ekkert skugga fellur í. En dag frá degi lifum lífi þótt þögnin segi ekki brotna niður Samt held ég áfram, ég er ósæranleg sál, ég get ei grátið eins og þú. Samt höldumst saman, verðum aldrei nánari…

Heimsendir

Heimsendir (Lag / texti: Njáll Þórðarson og Hreimur Örn Heimisson / Friðrik Sturluson) Ég hugsa oft það sem að gerist hér. Allt sem er augljóst mál eða enginn sér. Að búa okkur öll undir næsta dag er betra’ en ekki neitt fyrirkomulag. &nbsp Get ég treyst á þig og sjálfan mig, ef þú gætir aðeins…

Terlín

Terlín (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Jón Guðfinnsson) Litt ég latur á bakinu flatur, nýfarinn að læra á lífið. Ég er líka mikið búinn að reyna að sýna þér ég kunni á þetta líf. Að komast eitt skref, tvö skref áfram, þetta gæti farið að koma. Sýndu mér, hvað ég þarf að gera…

Mmm…

Mmm… (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjón Kjartansson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Fáðu þér. Ég hef allt sem þú þarft, meira partí, ananas og banana til að narta’ í. Hvort sem þú vilt allt eða ekkert slappaðu’ af og fáðu þér konfekt. Fáðu þér því ég er heilt hlaðborð, slappaðu’ af…

Sama hvar þú ert

Sama hvar þú ert (Lag / texti: Sigurjón Kjartansson / Páll Óskar Hjálmtýsson) Komið undir morgun – gatan næstum auð. Búist er við stormi. Skýin eru rauð. Þú ert hér með mér. Sólin skín í heiði – það er komin nótt. Stend á miðri hraðbraut – samt er allt svo hljótt. Náttúran er dúndur. En…

Leitin að prófessornum

Leitin að prófessornum (Lag / texti: Jóhann Jóhannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson / Páll Óskar Hjálmtýsson og Óttarr Proppé) Þegar fór að myrkva ég varð að fara út, allir störðu’ á kaggann – Þökk sé Alla Rúts. Ég fann mig rosalega knúinn að fara partí í, þá hitti ég þær báðar, Súshí og Randí Normandí.…

Birtir til

Birtir til (Lag / texti: Gunnar Þór Eggertsson og Hreimur Örn Heimisson / Hreimur Örn Heimisson) Þó tíminn standi stundum kyrr og vart er hægt að dreyma nema stundarkorn, eitt stundarkorn með þér. Eitt augnablik er jafnt og ótal stundir, aldrei þreyttur verð af þinni ímynd af þér. Viðlag En nú er bjart í minni…

Geimflaugin

Geimflaugin (Lag / texti: Land og synir / Jón Guðfinnsson) Út í geim hún þaut, geimflaugin er komin á flug. Á nýrri vetrarbraut, nú varð hún að sýna dug. Nýjar stjörnur, aðrir heimar á ystu nöf. Aðrar víddir, aðrir geimar, allt færandi gjöf. viðlag Geimflaugin kemur, hún þýtur um loftin blá. Í geimnum hún flýgur,…

Dreymir

Dreymir (Lag og texti Hreimur Örn Heimisson)   Myrkrið fer, hverfur úr huga mér þegar þú brosir blítt til mín, ég dag hvern dvel hjá þér. Í ímyndun ég ávallt sé, það ert þú sem mig dreymir um, ég þig elska vil og þrá. viðlag Því mig dreymir allt um þig, þína ást og mig…

Hvað hef ég gert?

Hvað hef ég gert? (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson og Gunnar Þór Eggertsson / Hreimur Örn Heimisson og Gunnar Þór Eggertsson) Hvar er allt sem áður var? Er ég ekki lengur þar? Er kominn inn í dimman heim, hvað hef ég gert? Orðin þín þau særðu mig, í reiði lagði hönd á þig. Viltu…

Ástarfár

Ástarfár (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Hreimur Örn Heimisson og Jón Guðfinnsson) Sjáðu, ég finn – líkaminn stendur einn og sár, þetta ástarfár er að gera mig brjálaðan. Ég og þú, hljómar það ekki vel? Mér er sama, ég gæti elskað þig. Á morgun verður samt aldrei eins og nú, sýndu mér því…

Hver á að ráða?

Hver á að ráða? (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Jón Guðfinnsson) Ég kann ekki að sýna þér hver það er sem á að ráða hér. Það er sama hvað ég segi, þú snýrð öllu við og misskilur líka. Ég horfi á mig veslast upp í örmum þínum, þvílík spegilmynd. Ég er kominn miklu…

Ágætis byrjun

Ágætis byrjun (Lag og texti: Sigur rós) Bjartar vonir rætast, brosum og hlæjum glaðir er við göngum bæinn vinátta og þreyta mætast höldum upp á daginn og fögnum tveggja ára bið fjarlægur draumur fæðist og borgum fyrir okkur borðum og drekkum saddir með því sem við eigum í dag í takt við tónlistina setjumst niður…

Viðrar vel til loftárása

Viðrar vel til loftárása (Lag og texti: Sigur rós) Ég læt mig líða áfram hugsa hálfa leið í gegnum hausinn afturába Sé sjálfan mig syngja fagnaðarerindið sem við sömdum saman og boðuðum út Við áttum okkur draum áttum allt við riðum heimsendi við riðum leitandi klifruðum skýjakljúfa sem síðar sprungu upp friðurinn úti ég lek…

Hjartað hamast

Hjartað hamast (Lag og texti: Sigur rós) Hjartað hamast eins og alltaf en nú úr takt við tímann týndur og gleymdur heima hjá mér alveg að springa gegnum nefið sný upp á sveitta sængina stari á ryðið sem vex á mér étur sig inn í  skelina stend upp, mig svimar það molnar af mér ég…

Ný batterí

Ný batterí (Lag og texti: Sigur rós) Heftur með gaddavír í kjaftinum sem blæðir mig læstur er lokaður inni í búri dýr nakinn ber á mig og bankar upp á frelsari ótaminn setur í ný batterí og hleður á ný. Við tætum tryllt af stað út í óvissuna þar sem við rústum öllu og reisum…

Flugufrelsarinn

Flugufrelsarinn (Lag og texti: Sigur rós)   Hamagangur, ég þusti niður að læknum bjargvættur, og fór með litla bæn en í dag á ég að bjarga því ég var hræddur sem flestum flugum sólin skein og lækurinn seytlaði, sóley – sóley, flugurnar drepast með spotta í skip ég er með í hvorri hendi, ákveðinn, ég…

Starálfur

Starálfur (Lag og texti: Sigur rós) Blá nótt yfir himininn, blá nótt yfir mér. Horfinn út um gluggann minn með hendur faldar undir kinn, hugsum daginn minn í dag og í gær. Blá náttfötin klæða mig í beint upp í rúm, breiði mjúku sængina, loka augunum, ég fel hausinn undir væng, starir á mig lítill…

Svefn-G-englar

Svefn – G – englar (Lag og texti: Sigur rós) Ég er kominn aftur, á ný inn í þig, það er svo gott að vera hér/til en stoppa stutt við. Ég flýt um í neðansjávar hýði á hóteli beintengdur við rafmagnstöfluna og nærist en biðin gerir mig leiðan – brot hættan, sparka frá mér og…

Vöðvastæltur

Vöðvastæltur (Lag og texti Hreimur Örn Heimisson)   Farðu frá, ég sé þig nú í nýju ljósi, á annan stað, ég vildi’ ég væri allt annar maður eins og þú, fullkominn í alla staði en farðu frá, ég ætla’ að byggja mig upp með hraði. Vertu átrúnaðargoðið mitt, kaflaskiptur líkami með sexappeal svo fullkominn, ekki…

Fullkomin

Fullkomin (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Jón Guðfinnsson) Horfi út í dimma nótt. Er þetta staður minn? Mér er ekki undir rótt, að reyna’ að vera eins og hinn. Vandi minn er háður þér, ef ekki þinn, er minn. Bæta skal, þá finn ég þig svo allt verði fullkomið. Eru þetta örlög mín?…

Eitthvað nýtt

Eitthvað nýtt (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Jón Guðfinnsson) Staðreyndin er sú að ég hef svarta trú, draumvakinn svefni af, sælu svefninn gaf. Þú vildir vekja mig. Laðast ótt og títt, alltaf eitthvað nýtt, sælustund og stað. Ég vissi hvað var að, ég vildi komast að. Hvað ert þú, ólm í anda iðin,…

Lending 407

Lending 407 (Lag / texti Hreimur Örn Heimisson / Hreimur Örn Heimisson, Jón Guðfinnsson og Gunnar Þór Eggertsson) Ég var barn sem að fékk aldrei að finna fyrir hlýju. Orðinn 18 en líður eins og 69. Ég er svekktur, sár, orðinn þreyttur á að vera hér á lágu tilverustigi, ég sé heiminn eins og enginn…

Örmagna

Örmagna (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Gunnar Þór Eggertsson og Hreimur Örn Heimisson) Sit hér með sjálfum mér og heyri í þér, er það rétt það sem þú segir mér er. Finnst þér að við skiljum það hvernig fer, ég og þú, við erum saman inni’ í mér. Ég vildi að ég væri…

Saga

Saga (Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson) Nú segi ég þér sögu af mínum draumum, ég sá þig standa mér við hlið. Ég horfði upp til skýja og vildi þangað flýja, ég vildi reyna finna frið. Viltu hlusta á mig, hlýddu á mín orð því þó mig langi til að reyna að vakna, ég vil…

Freistingar [2]

Freistingar (Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson) Freistingar, þær bíða eftir þér, eftir þér. Smjörið drýpur af hverju strái fyrir sig, allt fyrir þig. Önnur veröld bíður fyrir handan næsta stig. Finnst þér að þú sért lifandi, lifandi. Finnst þér að lífið sé þess virði til að reyna að lifa því. Ekkert eftir, þú stendur…

Allt á hreinu

Allt á hreinu (Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson) Ertu að hlusta, hér er ég. Einn góðan dag ég sagðist ætla að reyna gera betri mann úr mér, svo gerðist ekkert, kannski á ég enga von, nú sný ég þessu mér í vil, ég veit alveg hvað ég vil. viðlag Með hlutina á hreinu, það…

Undraland

Undraland (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Hreimur Örn Heimisson og Gunnar Þór Eggertsson) Við svífum á skýjum í draumalandi‘ á nýrri leið í dularfullum heimi á ævintýra stað. Ég vil ei koma niður aftur – aftur því hamingjan er inni’ í mér. Myrkrið svo fjarri mér, bjartir heimar koma fyrir sýn allt er…

Hvað er að?

Hvað er að? (Lag og texti: Gunnar Þór Eggertsson og Hreimur Örn Heimisson) Segðu mér hvernig get ég hjálpað, segðu mér hvað gerði ég rangt? Hvað gerist nú, hvað er ég að gera? Viltu sjá að sólin kemur upp? Horfðu á mig, við eigum allt of mikið, eitt augnablik ég missti af þér. Hvað gerist…

Kirsuber

Kirsuber (Lag og texti: Björn Jr. Friðbjörnsson og Jón Ólafsson) Kríthvít brjóst þín og kirsuber köstuðu mér í hylinn, berjamór, berja augum, berja þig aftur augum, draumur minn í efstu hillu. Tómatlituð tunga lipur læðir orðum, læðist inn í mig, þögnum þakin heyrum eyrun, heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt og kossar þínir innsigluðu orðin.…

Fordómar

Fordómar (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Gunnar Þór Eggertsson) Þreyttur, svekktur er, fólk starir, sýnist þér læt hugann reika‘, ímynda mér um nýja heima en hvert ég fer á annan stað finn ég það, á annan stað ég hlýt að komast að. Fordómar, hörundsfar það skiptir ekki þar, fylgdu mér, trúðu mér, allir…

Stríð

Stríð (Lag og texti: Gunnar Þór Eggertsson og Hreimur Örn Heimisson)   Í rústum þar hýsist lítil sál, að þrotum er komið lífsins bál en burt frá litið hver er það sem særist mest, allir þeir sem missa manna mest. En það ert þú sem getur breytt því, í gegnum aldir við höfum háð stríð…

Þú ert svo

Þú ert svo (Lag og texti: Björn Jr. Friðbjörnsson) Fyrirgefðu en hvað var það sem þú vildir, varstu búin að bera upp við mig erindið. Oftast nær reyni ég að taka vel eftir en þetta fór alveg gjörsamlega fram hjá mér, má bjóða þér að setjast hér við hliðina á mér. Þú liðast eins og…

Flugvélar

Flugvélar (Lag / texti: Jón Ólafsson / Björn Jr. Friðbjörnsson) Þegar ég horfi á þig mér finnst ég vera til, allt verður auðvelt – allt verður einfalt. Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt. Þegar ég horfi á þig lifna dauðir hlutir við, steinarnir ilma, gráta og hlæja. Getur verið að samanlagðar sálir geti…

Holur innan hausinn

Holur innan hausinn (Lag og texti: Björn Jr. Friðbjörnsson) Það er holur innan hausinn í mér nú þar sem heilinn áður var nú ert þú og þar kemst bara ekkert annað fyrir, allt annað flýgur bara framhjá og yfir. Þetta virðist vera ómæld fyrirhöfn, ég hef alltaf átt bágt með að muna nöfn, nú er…

Eplatré

Eplatré (Lag og texti: Björn Jr. Friðbjörnsson)   Hvað ertu að segja, hvað ertu að vilja mér? Þegar þú veist að ég vil ekkert af þér vita. Reyndu að skilja, reyndu að sjá að ég er ekki sá eini hér og þú munt komast að því viðlag að það hljóta að vera til eplatré í…

Á sama tíma að ári

Á sama tíma að ári (Lag og texti: Björn Jr. Friðbjörnsson) Þú varst rennandi blaut í miðjum pollinum þegar loksins ég skaut upp kollinum en þú komst svo seint, sumir þurfa að millilenda, samt var flogið beint, velkomin á leiðarenda. Mikið var það gott að þú skyldir koma, mikið var það gott að þú gast…

Fagurt fés

Fagurt fés (Lag og texti: Daníel Á. Haraldsson) Ég verð að játa fyrir þér en játningin krefst einbeitingar, veittu mér nú athygli og heyrðu. Sjálfsálit mitt er ekki hátt og ég er bestur með sjálfum mér en ég get feikað sæmilega. Heyrðu, veistu hvað. Ég hef ekki fagurt fés en ég finn að þú vilt…

Blásið á

Blásið á (Lag / texti: Stefán Hjörleifsson / Björn Jr. Friðbjörnsson og Daníel Á. Haraldsson) Fljúgum fríður flokkur, þar fer lúðrasveit. Svanir svífa yfir okkur, sé ég gæs á beit. Rúta upp til sveita, fögur er landsbyggðin ég man sint hvað þau heita mýmörg kauptúnin. viðlag Síðan er áð til að hægja sér, þeir gleyma…