Afmælisbörn 10. nóvember 2020

Kormákur Geirharðsson

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítarleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag, hann hefur mest starfað sem sólólistamaður og gefið út fleiri tugi platna sem slíkur en hefur einnig unnið með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni, auk annarra.

Kormákur Geirharðsson verslunarmaður, kráareigandi og fyrrum trommuleikari sveita eins og Q4U, Langa Sela og skugganna, Hringja, Ikarusar, KK-bands og Oxzmá svo fáeinar séu upp taldar, er fimmtíu og sjö ára gamall á þessum degi.

Gunnar Ben (Benediktsson) sem kunnastur er fyrir veru sína í hljómsveitinni Skálmöld er fjörutíu og fjögurra ára gamall í dag. Gunnar leikur þar á hljómborð og óbó (og syngur) en hefur einnig leikið og verið viðloðandi sveitir eins og Hraun og Ljótu hálfvitana, auk þess að hafa spilað inn á fjölda platna með hinum og þessum. Hann hefur jafnframt annast kórstjórn, m.a. með Vocal Project o.fl.

Einnig hefði Steinþór Stefánsson bassaleikari frá Akureyri (Fræbbblarnir, Q4U, Parror, Snillingarnir, Akureyrar-útlagarnir o.m.fl.) átt afmæli á þessum degi en hann lést á sviplegan hátt 1988. Steinþór var fæddur 1961.

Vissir þú að feður Gunnars Bjarna Ragnarssonar (Jet Black Joe) og Vilhelms Antons Jónssonar (200.000 naglbítar) voru saman í hljómsveitinni Randver?