Afmælisbörn 18. nóvember 2020

Magnús Trygvason Eliassen

Í dag eru fimm afmælisbörn í gagnabanka Glatkistunnar:

Þorleifur J. Guðjónsson bassaleikari er sextíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Þorleifur hefur starfað í ótal hljómsveitum fyrst sem gítarleikari en síðan á bassa, sumum þekktum en öðrum minna þekktum. Hér eru nefndar nokkrar en þeim fer fjölgandi: KK-band, Egó, Samsara, Strákarnir, Vinir Dóra, Ómar og Valdi, Óli fink, The Grinders, Frakkarnir, Óregla, MX-21, Fjórir litlir sendlingar, Mórall og Þrír á palli. Þorleifur er enn að.

Þá er rapparinn Aron Can Gultekin tuttugu og eins árs í dag. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron rappað í fjölda ára en hann byrjaði aðeins níu ára gamall. Hann tók þátt í Músíktilraunum 2015 með hljómsveitinni Epik en vakti fyrst verulega athygli fyrir plötuna og samnefnt lag, Þekkir stráginn, síðan hafa fleiri lög fylgt í kjölfarið sem og platan Ínótt. Hann hefur ennfremur unnið með öðru tónlistarfólki s.s. Emmsjé Gauta, Unnsteini Manúel o.fl.

Kjartan Ólafsson tónskáld á afmæli í dag en hann er sextíu og tveggja ára gamall. Kjartan lék hér fyrrum með fjölda hljómsveita svosem Trítiltoppakvartettnum og Smartbandinu og samdi m.a. lagið Lalíf sem mörgum er minnisstætt. Hann hefur auk þess gefið út fjölmargar plötur með tónlist sinni, samið leikhús- og óperutónlist, tónverk fyrir hljómsveitir og hljóðfæri, og var meðal þeirra fyrstu hér á landi til að semja tónlist með aðstoð tölvu en þar hefur hann notað forritið Calmus sem hann hannaði sjálfur.

Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari er þrjátíu og fimm ára gamall, hann þarf sjálfsagt ekkert að kynna því fáir hafa leikið inn á jafnmargar plötur og leikið með jafn mörgum hljómsveitum og hann þrátt fyrir að vera ekki eldri en þetta. Meðal sveita hans má nefna Moses Hightower, ADHD, Ferlíki, Llama, Tepokann, Hist, K-tríó, Kynslóðabandið, Geisla, Reginfirru, Mikaels Mána trio og Amiinu. Þá hefur hann einnig gefið út plötu í félagi við Sólrúnu Sumarliðadóttur.

Að síðustu er hér nefndur svarfdælski söngvarinn Jóhann Daníelsson (1927-2015) sem söng inn á fjölmargar plötur um ævina, m.a. eina einsöngsplötu í eigin nafni og aðra ásamt Eiríki Stefánssyni. Hann söng jafnframt lengi með Karlakór Dalvíkur og Karlakórnum Geysi og söng oft einsöng með þeim kórum, færri vita að Jóhann var söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Tónatríós á Dalvík í kringum 1960.

Vissir þú að Björgvin Halldórsson er liðtækur munnhörpuleikari og spilaði m.a. sólóið í laginu Strax í dag með Stuðmönnum?