Afmælisbörn 17. nóvember 2020

Karl Roth

Afmælisbörn dagsins eru fjögur að þessu sinni:

Gauti Þeyr Másson rappari (Emmsjé Gauti / MC Gauti) er þrjátíu og eins árs gamall á þessum degi en hann hefur verið í rappeldlínunni síðan 2002 þegar hann birtist í Rímnaflæði aðeins þrettán ára gamall, hann hefur verið í sveitum eins og 32C og starfað með mörgum öðrum röppurum eins og títt er um þá. Emmsjé Gauti hefur gefið út nokkrar plötur og hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár.

Jónas R. Jónsson söngvari og flautuleikari er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Jónas fór mikinn í íslensku tónlistarlífi um 1970 og söng þá í sveitum eins og Flowers, þar sem Slappaðu af og Glugginn voru hans þekktustu lög, hann söng einnig með hljómsveitunum Náttúru, Brimkló, Toxic og 5 pence auk þess sem hann sendi frá sér eina tveggja laga plötu 1972 og breiðskífu ásamt Einari Vilberg sama ár. Hann hefur aukinheldur fengist við upptökur og fiðlusmíði.

Þá á Karl Roth sextíu og þriggja ára afmæli í dag. Karl var í hljómsveitinni Melchior á sínum tíma og lék þar á hin ýmsu hljóðfæri á plötum sveitarinnar. Hann hefur einnig komið við sögu á plötum Hilmars Oddssonar og á að baki sjálfur eina sólóplötu sem kom út þegar hann var átján ára gamall en sú plata er sjaldgæf og verðmæt í augum safnara.

Stella Hauks hafði og þennan afmælisdag en hún lést 2015. Guðný Stella Hauksdóttir, fædd 1953 í Keflavík, var þekkt verkalýðsbaráttukona og notaði tónlistina sem vopn í baráttunni sem og fyrir réttindamálum samkynhneigðra en hún vakti töluverða athygli þegar hún sendi frá sér plötuna Stellu árið 1999 þá starfandi fiskvinnslukona í Vestmannaeyjum. Hún gaf síðan út aðra plötu 2013, Trúður í felum.

Vissir þú að söngvarinn Vilhjálmur Vilhjálmsson hóf sinn tónlistarferil sem bassaleikari?