Tætum og tryllum
(Lag / texti: Jakob F. Magnússon)
Tætum og tryllum og tækið nú þenjum
í botni eitthvað lengst upp í sveit,
tröllum og tjúttum og tökum svo lagið
í lundi hvar enginn veit.
Allir eru‘ í fínu formi,
enginn nennir neinu dormi
því nóttin er löng
þó að lífið sé stutt
og allir fara‘ í sveitaferð.
Allt er í fína og enginn vill sýna‘ af sér
sút eða sorg í kvöld,
Konráð og ræna, hani og hæna
fatta‘ að hér er gleðin við völd.
Allir eru‘ í fínu formi,
enginn nennir neinu dormi
því nóttin er löng
þó að lífið sé stutt
og allir fara‘ í sveitaferð.
Sóló
Allir eru‘ í fínu formi,
enginn nennir neinu dormi
því nóttin er löng
þó að lífið sé stutt
og allir fara‘ í sveitaferð.
[m.a. á plötunni Stuðmenn – Sumar á Sýrlandi]