Afmælisbörn 24. desember 2020

Máni Orrason

Aðfangadagur jóla hefur að geyma fjögur tónlistartengd jólaafmælisbörn:

Jóhann R. Kristjánsson tónlistarmaður frá Egilsstöðum er fimmtíu og níu ára gamall í dag. Jóhann er ekki þekktasti tónlistarmaður þjóðarinnar en plata hans, Er eitthvað að? frá árinu 1982 hefur öðlast cult-sess meðal poppfræðinga. Á sínum tíma galt platan afhroð gagnrýnenda en hefur nú fengið uppreisn æru, og er í dag eftirsóttur safngripur.

Heimir Sindrason tannlæknir á einnig afmæli í dag en hann er sjötíu og sex ára gamall. Heimir átti stuttan en gæfuríkan feril sinn sem tónlistarmaður um tvítugt er hann starfrækti þjóðlagadúettinn Heimir og Jónas ásamt Jónasi Tómassyni á meðan þeir voru við nám við Menntaskólann í Reykjavík, þeir gáfu út tvær breiðskífur en Heimir hefur einnig gefið út tvær sólóplötur síðan, um og eftir síðustu aldamót. Þess má geta að Heimir samdi lagið Hótel jörð við ljóð Tómasar Guðmundssonar.

(Reynir) Máni Orrason tónlistarmaður er tuttugu og þriggja ára gamall á þessum degi. Hann hefur sent frá sér tvær sólóplötur og fjölda smáskífna, þá fyrstu er hann var einungis sextán ára gamall. Máni hefur búið og starfað á Spáni lengstan hluta ævi sinnar.

Og að síðustu er hér nefnd kanadíska tónlistarkonan Rex Beckett en hún er þrjátíu og fimm ára gömul í dag. Rex Beckett hefur búið hér á landi í um árabil og var söngkona hljómsveitarinnar Antimony en hefur einnig komið fram undir aukasjálfinu Rex Pistols (áður Discipline) og gefið út plötur undir því nafni.

Vissir þú að Elsa Sigfúss varð fyrst íslenskra kvenna til að syngja jólalag á plötu (1945)?