
Gísli Þór Gunnarsson
Eitt afmælisbarn kemur við sögu á þessum síðasta degi ársins:
Gísli Þór Gunnarsson trúbador (G.G. Gunn) er sextíu og tveggja ára gamall í dag, Gísli er ef til vill ekki meðal þekktustu tónlistarmanna Íslands en eftir hann liggja þó sex útgáfur í formi kassettna. Gísli starfaði um tíma sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi en hefur lítið sinnt tónlistinni síðustu tvo áratugi.
Vissir þú að Sigurjón Kjartansson hefur gefið út tvær plötur undir nafninu Olympia?