
Aldís Fjóla
Í dag eru þrjú afmælisbörn á lista Glatkistunnar:
Söngkonan Salka Sól Eyfeld (Hjálmarsdóttir) er þrjátíu og þriggja ára gömul á þessum ágæta degi. Sölku Sól þekkja flestir en hún er eins og kunnugt er önnur söngkvenna Amabadama og ein Reykjavíkurdætra og Tazmaníu-liða. Salka Sól var einnig í hljómsveitunum Skonsunum og Útidúr og hefur í þeim sveitum leikið á hin ýmsustu hljóðfæri, hún hefur ennfremur starfað við leikhústónlist og dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi.
Önnur söngkona (og þjóðfræðingur), Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir á afmæli í dag en hún er þrjátíu og níu ára gömul. Aldís Fjóla sem kemur frá Borgarfirði eystra, nam söng í Danmörku og hefur komið víða fram sem söngkona á austanverðu landinu, s.s. á Bræðslunni en hún hefur einnig komið við sögu á nokkrum plötum, m.a. með Á móti sól þar sem Magni bróðir hennar er söngvari. Aldís Fjóla sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, Shadows árið 2020.
Þá hefði Jóhann Möller söngvari einnig átt afmæli í dag en hann lést árið 2018. Jóhann var fæddur 1934 og var af fyrstu kynslóð dægurlagasöngvara hérlendis en fjögur lög á tveimur plötum komu út með honum áður en hann dró sig í hlé frá söngnum, þeirra á meðal var að finna lagið Pabbi vill mambó en það heyrist stöku sinnum enn spilað í útvarpi.
Vissir þú að hljómsveitin Trabant notaði gamalt plötuumslag frá Upplyftingu á plötu sína, Moment of truth árið 2001?