Hollywood
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Ungi maður, hvað ertu að hugsa
þegar þú ferð út í kvöld,
að fara á diskó, ná í píu,
láta áfengið fá af þér völd
er málið að hafa ljósashowin
sem skipta um lit, á þinni visnu hönd
sljóvgandi músík, allir fullir
í smart fötum, velkominn í diskó veröld
enginn einmana, allir vinir
takist þá hönd í hönd
eins og í sjampó auglýsingu
þið hlaupið um á fallegri strönd
í slow motion í sjampó auglýsingu
við sólarlagið á fallegri strönd
jafnvel gömlu meistararnir svíkja
tískubúðirnar líka
allt gefur þetta millarði út í hönd
þau ljúga að ykkur, þau pretta
diskóið mun velta
Hollywood er opin í kvöld.
[m.a. á plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]