Hve þungt er yfir bænum
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Hve þungt er yfir bænum
sem er svartur, leiður.
Ungt birki í húsagörðum
með rotin lauf tóm hreiður.
Dallurinn í slipp, ég er snauður.
Túrinn bölvað flipp, enginn auður.
Aldrei skal ég aftur út á ballarhaf
fyrr en flotinn orðinn er rauður.
Víxlar bíða brosandi heima á borðum
horfnar allar mublurnar.
Konan kvaddi mig með fáum orðum,
kannist þið við rulluna?
Hversu dásamlegt er að vera sjómaður,
sannur Vesturbæingur.
Léttfríkaðir mávar syngja óð í eyru:
Ertu ekki ánægður?
Já, sjómannslífið er sönn rómantík.
Aldrei bræla, þú þarft enga skjólflík.
Nóg af bleðlum, djamm í Reykjavík
og þú munt enda sem sjórekið lík.
[m.a. á plötunni Bubbi Morthens – Ísbjarnarblús]