Joe Hill
(Lag / texti: erlent lag / Einar Bragi)
Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill,
hinn sanna verkamann.
„En þú ert löngu látinn, Joe?“
„Ég lifi“, sagði hann.
„Ég lifi“, sagði hann.
„Í Salt lake city“, sagði ég,
„þar sátu auðsins menn
og dæmdu þig að sínum sið.“
„Þú sérð ég lifi enn.
Þú sérð ég lifi enn!“
„En Joe, þeir myrtu“, mælti ég,
„þeir myrtu – skutu þig.“
„Þeim dugir ekki drápsvél nein.
Þeir drepa aldrei mig.
Þeir drepa aldrei mig.“
Sem lífsins björk svo beinn hann stóð,
og bliki úr augum sló.
„Þeir skutu“, sagði‘ann, „skutu mig.
En skot er ekki nóg.
En skot er ekki nóg“.
„Joe Hill deyr aldrei“ sagði.
„Í sál hvers verkamanns,
hann kveikti ljós sem logar skært.
Þar lifir arfur hans.
Þar lifir arfur hans.
Frá Íslandi til Asíu, frá afdal út á svið,
þeir berjast fyrir betri tíð.
Ég berst við þeirra hlið.
Ég berst við þeirra hlið!“
Mig dreymdi í nótt ég sá Joe Hill,
hinn sanna verkamann.
„En þú ert löngu látinn, Joe?“
„Ég lifi“, sagði hann.
„Ég lifi“, sagði hann.
[af plötunni Hálft í hvoru – Almannarómur]