Komu engin skip í dag

Komu engin skip í dag
(Lag og texti: Magnús Eiríksson

Um sólsetur í fjörunni
á steini við röst er hún
og bláum augum beinir
út að hafsins ystu brún.
Og fyrir munni sér hún tautar
alltaf sama brag:
Guð minn góður, komu engin skip í dag.

Hún átti mann sem sigldi sjó
og færði fiskinn heim.
Þeir fórust víst í óveðri,
við gleymdum ekki þeim.
En síðan er hún undarleg
og syngur þennan brag.
Guð minn góður, komu engin skip í dag.

Hún hefur árum saman syrgt
sinn horfna eiginmann,
og sjáist sigla eitthvert skip
hún heldur að það sé hann.
Og allir hérna í þorpinu
nú þekkja þennan brag:
Því lét guð minn ekki skipið koma í dag?

[m.a. á plötunni Magnús Eiríksson – Tíminn líður hratt]