Stebbi

Stebbi
(Lag og texti: höfundur ókunnur)

Er Stebbi litli fæddist, var hann fagur á að sjá.
Það fundu allir þá,
hvað fyrir honum lá.
Og þegar þessi litli kútur kalsaði og hlóð,
þá kallaði hún mamma: Stebbi, ó!

Hvað getur hann Stebbi gert að því, þó hann sé sætur
og geri allar stelpur vitlausar í sér?
Hvað varðar hann um það, hvort heimasætan grætur
og horfi rauðum augum á hann, hva sem hann fer?

Hvað getur hanna Stebbi gert að því, þó hann sé sætur
og geti stundum verið til í hopp og hí?
Og þó að kvenfólkið, það gefi að honum gætur,
hvað getur hann Stebbi, aumingja Stebbi, gert að því?

[af plötunni Alfreð Clausen og Sigrún Ragnarsdóttir – Fyrr var oft í koti kátt: takið undir með Sigrúnu og Alfreð 2 ]