Þú bláfjalla geimur

Þú bláfjalla geimur
(Lag / texti: erlent lag / Steingrímur Thorsteinsson)
 
Þú bláfjalla geimur með heiðjöklahring
um hásumar flý ég þér að hjarta.
Ó, tak mig í faðm, minn söknuð burt ég syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta,
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.

Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristalsdagga.
Un miðsumarshimni sé hvílan mín,
hér skaltu, Íslands, barni þínu vagga,
hér skaltu, Ísland, barni þínu vagga.

Hér andar guðs blær, og hér verð ég svo frjáls,
í hæðir ég berst til ljóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum himinbáls,
uns leiðist ég í sólu fegri drauma,
uns leiðist ég í sólu fegri drauma.
 
[m.a. á plötunni Einar Sturluson – Þú bláfjalla geimur]