Við gengum tvö

Við gengum tvö
(Lag / texti: Friðrik Jónsson / Valdimar Hólm Hallstað)

Við gengum tvö,
við gengum tvö í rökkurró.
Við leiddumst hljóð,
við leiddumst hljóð um húmgan skóg.
Þú varst yndi,
þú varst yndi og ástin mín
og stundin áfeng,
stundin áfeng eins og vín.

Við hlýddum tvö,
við hlýddum tvö í húmi ein
er blærinn kvað,
er blærinn kvað við blöð og grein.
Ég var nóttin,
ég var nóttin þögla þín
og þú varst eina,
þú varst eina stjarnan mín.

Á meðan norðurljósin leiftra
um bláan himininn
þá sit ég einn og þrái
kveðjukossinn þinn.

[m.a. á plötunni Sigurður Guðmundsson og Memfismafían – Oft spurði ég mömmu]