
Steingrímur Þórhallsson
Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Grímur Atlason tónlistarmaður og margt annað, er fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Grímur hefur starfað með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina, verið bassaleikari í sveitum eins og Drep, Dr. Gunni, Grjóthruni í Hólshreppi, Unun, Rosebud og Ekki þjóðinni og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves svo eitthvað sé nefnt.
Steingrímur Þórhallsson tónskáld, organisti og kórstjóri er fjörutíu og sjö ára í dag, Steingrímur sem hefur einnig gengið undir nafninu Stein Thor, sigraði í alþjóðlegri dægurlagasamkeppni undir því nafni en hann hefur einnig starfað í sönghópnum Rinascente sem sérhæfði sig í tónlist frá endurreisnartímanum og SMS-tríóinu sem lagði áherslu á barrokk tónlist. Það kemur því nokkuð á óvart að Steingrímur var meðal þeirra sem skipuðu hljómsveitina Reggae in ice í upphafi.
Gítarleikarinn Guðmundur Pétursson er fjörutíu og níu ára í dag en hann hefur verið landsþekktur síðan hann kom fram í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins vorið 1987 en hann var þá aðeins fimmtán ára. Síðan þá hefur hann leikið inn á tugi ef ekki hundruð platna og er meðal virtustu gítarleikara landsins, ekki síst í blúsgeiranum. Guðmundur hefur ennfremur gefið út nokkrar sólóplötur.
Þá á Tryggvi Tryggvason (Jóhannsson) hljóðvinnslumaður sem hefur starfað í Bretlandi mörg undanfarin ár sjötíu og níu ára afmæli. Tryggvi sem reyndar er rafmagnsverkfræðingur, er fæddur á Íslandi en fluttist ungur til Bretlands, hann starfaði um tíma við upptökur hjá Decca fyrirtækinu en hefur hin síðari ár starfrækt eigin fyrirtæki í bransanum og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga í klassíska hluta fræðanna.
Að lokum er hér nefndur trúbadorinn Bjarni Tryggva frá Norðfirði sem er fimmtíu og átta ára gamall á þessum degi. Bjarni vakti athygli á síðari hluta níunda áratugarins þegar hann sendi frá sér tvær sólóplötur en síðan varð bið á efni frá honum meðan hann m.a. flakkaði um Norðurlöndin til að spila. Þrjár plötur í viðbót hafa komið út með Bjarna en hann hefur búið erlendis síðustu árin.
Vissir þú að Smárakvartett hefur verið starfandi á Akureyri, í Reykjavík og í Vestmannaeyjum?