Æskuminning

Æskuminning
(Lag / texti: Ágúst Pétursson / Jenni Jóns)

Ó, manstu gamlar æskuástar stundir,
svo yndislegt var þá að vera til,
litla kofann, blómabrekku undir,
bunulækinn upp við hamragil.
Um sumarkvöld við sátum þar og undum
um sólarlag í blíðum sunnanþey,
og litla blómið fagra er við fundum,
í fjóluhvammi, það var gleym-mér-ey.

Manstu litlu lömbin út við stekkinn,
litla rjóðrið fagra upp við hól;
fuglinn litla er sætast söng á kvöldin,
silungshylinn fram við kvíaból.
Ánni í dalnum ei við munum gleyma,
oft við hlýddum blítt á hennar nið.
Allt var best og okkur kærast heima,
unaðslegt í dalsins kyrrð og frið.

[m.a. á plötunni Alfreð Clausen – Manstu gamla daga]