Eins konar ást [2]

Eins konar ást [2]
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Rauðar laufið og lyngið mjúka
og ljósgrænn mosinn hvísla að mér.
Fæstir leiðina leggja hingað,
langt er síðan ég var hér.

Hruninn garður og gamlar tóftir,
grasi vaxin eldavél,
á bæjarhólnum blinduð dúkka,
brotin kanna og ryðguð mél.

Kyrra hugann, hlusta á vindinn hlæja
í grasið þar sem hann fer
niður dalinn hraðar hraðar
með heita sól að baki sér.

Birkihríslan og hafið bláa,
himinninn sem fjallið háa
yrjótt hraun, grjótið gráa,
allt það stóra, allt það smáa
finn ég flæða um æðar mér.

[af plötunni Bubbi Morthens – Von]