Með vindinum kemur kvíðinn
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Fyrir vestan er veturinn stríður,
vakir yfir byggð og tíminn líður,
með sólvarma daga, dapurlegan róm,
dreymir ekki alla himnanna blóm.
Vegirnir lokast og veturinn hamast,
vörnin er engin, þorpið lamast,
menn horfa upp í hlíðina, sjá ekki neitt,
himinn og jörð renna saman í eitt.
Dag eftir dag snjónum kyngdi niður,
dúnmjúk mjöll, þessi hvíti friður,
í rökkrinu þorpið sýndist svo smátt,
svo fór hann að hvessa úr annarri átt.
Og með vindinum kemur kvíðinn,
úti er kolsvört hríðin
og fjallið það öskrar, svo fellur öll hlíðin
og húsin þau hverfa í kófið.
Eitt andartak stóð tíminn kyrr,
æddi síðan inn um glugga og dyr,
hreif burt vonir, reif upp rætur,
einhvers staðar engill grætur.
Hvers vegna hér – menn spá og spyrja,
spurningar flæða, hvar á að byrja,
fólkið á þig kallar Kristur,
kvölin nístir bræður og systur.
Tárin eru leið til að lækna undir,
lífið er aðeins þessar stundir.
Gangverk lífsins þau látlaust tifa
og við lærum með sorginni að lifa.
[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]