Hvað er töff við það í snöru að hanga
(Lag og texti: Bubbi Morthens)
Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg
með ljósum prýddar götur, hrein og fögur torg,
atvinnuleysisdraugurinn á daginn hefur hljótt
en dæmir menn á nóttunni og étur þeirra þrótt,
börnin eru á götunni og gatan kennir þeim
að grimmdin er vörn þeirra sem aldrei fara heim.
Menn bjóða upp á amfetamín, alsælu og hass,
allt sem hugur girnir, jafnvel lítinn snotran rass,
þrýstingur frá félögum, svona fljótur taktu einn,
finndu þú sekkur, maður sekkur eins og steinn.
Það er betra að vera dópaður og dreyma um annan heim,
drukkin mamma hvíslar – strákur, þú ert einn af þeim.
Hvað er töff við það í snöru að hanga hlandblautur og dauður,
hvað er töff við það í kistu að liggja fjólublár og rauður,
það er enginn sigur í orðum þeim að hvísla ókei,
töffari er sá sem þorir að segja upphátt nei.
Átta stunda vinnudagur, hvern dreymir ekki um það,
draumurinn að geta lifað og átt sinn samastað
þó þú vinnir myrkra á milli þá færðu aldrei frið
fyrir reikningum sem enda sem krabbi í þínum kvið,
orðin þylur þreyttur faðir fúllyndur og strangur,
fölur strákur veit hvað er að vera í hjarta sínu svangur.
Flótti, flótti eitrið mjúka má ég ekki dauðann strjúka,
myndir, myndir úr pípu rjúka samt lækna ekki hjartað sjúka,
brennivín sem vímugjafi er eins og hægri höndin á Tyson,
þeir sem halda þeir geti unnið lifa í falskri von,
það skiptir ekki máli hvað hinir krakkarnir halda,
eitrið lætur börnin sín með heilsu sinni gjalda.
Hvað er töff við það í snöru að hanga hlandblautur og dauður,
hvað er töff við það í kistu að liggja fjólublár og rauður,
það er enginn sigur í orðum þeim að hvísla ókei,
töffari er sá sem þorir að segja upphátt nei.
Skólinn er martröð þar sem grimmdin gleypir þá smáu,
ræfilslegur í tíma situr með baugana sína bláu,
enginn fókus, engin skerpa, skelfing festir rætur,
sem skuggi fölur ungur maður reynir að fara á fætur,
frelsi er að geta sagt mig langar ekkert í,
frelsi er að geta sagt mig langar ekkert í.
[af plötunni Bubbi Morthens – Allar áttir]