Haustvísur til Máríu

Haustvísur til Máríu
(Lag / texti: Atli Heimir Sveinsson / Einar Ólafur Sveinsson)

Máría, ljáðu mér möttul þinn,
mæðir hretið skýja;
tekur mig að kala á kinn,
kuldi smýgur‘ í hjartað inn;
mér væri skjól að möttlinum þínum hlýja.

Máría, ljáðu mér möttul þinn,
mærin heiðis sala;
að mér sækir eldurinn,
yfir mig steypist reykurinn;
mér væri þörf á möttlinum þínum svala.

Þegar mér sígur svefn á brá
síðastur alls í heimi,
möttullinn þin mjúka þá.
Móðir breiddu mig ofan á,
sofi ég vært og ekkert illt mig dreymi.

[af plötunni Samkór Selfoss – Haustvísur]