Hvar ertu vina
(Lag / texti: Oliver Guðmundsson / Runólfur Stefánsson)
Hvar ertu vina sem varst mér svo kær?
Veistu´að ég elska þig, draumfagra mær?
Upp frá þeim degi´er þig dreymdi hjá mér
dvelur minn hugur hjá þér.
Man ég þá stund er ég mætti þér fyrst,
man er ég fékk þig að skilnaði kysst.
Hví ertu horfin mér, hugljúfa mær?
Hvar ertu, sem varst mér svo kær?
[m.a. á plötunni Alfreð Clausen – Manstu gamla daga]