Í rökkurró (Manstu ekki vinur)

Í rökkurró (Manstu ekki vinur)
(Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson)

Vornæturfriður fyllir bæinn í rökkurró.
Sólin í vestri sest í æginn í rökkurró.
Og meðan rauðagulli reifast næturtjöld.
Þú kemur til mín í rökkurró.

Manstu ekki vina fyrsta fundinn við Arnarhól.
Mörg var þar okkar unaðsstundin þá sezt var sól.
Við heyrðum svani kveða söng um ást og vor.
Og sátum þar ein í rökkurró.

Langt er nú liðið síðan þá
því leiðir skildu og þú hvarfst mér frá.
Veistu? Ég vakti marga nótt.
Og vonaði og bað af heitri þrá.

Vina í kvöld ég veit þú bíður við Arnarhól.
Tak mig í faðm því tíminn líður og sezt er sól.
Því enn á vorið nógar vonir fyrir þau
sem sitja hér ein í rökkurró.

[m.a. á plötunni Helena Eyjólfsdóttir – Hvítu mávar]