Íslands lag
(Lag / texti: Sigvaldi Kaldalóns / Grímur Thomsen)
Heyrið vella á heiðum hveri.
Heyrið álftir syngja‘ í veri.
Íslands er það lag.
Heyrið fljót á flúðum duna,
foss í klettaskoru bruna.
Íslands er það lag.
Eða fugl í eyjum kvaka.
Undir klöpp og skútar taka.
Íslands er það lag.
Heyrið brim á björgum svarra,
bylja þjóta svipi snarra.
Íslands er það lag.
Og í sjálfs þín brjósti bundnar
blunda raddir náttúrunnar.
Íslands eigið lag.
Innst í þínum eigin barmi,
eins í gleði, eins í harmi
ymur Íslands lag.
[m.a. á plötunni Karlakórinn Söngbræður – Vorvindar]